Fyrir bókhaldsstofur
Þúsundir klukkutíma sparast á hverju ári hjá bókhaldsstofum sem nota Skrif. Minnkar handavinnuna, sparar tíma og hraðar á allri bókhaldsvinnu.
Sparaðu tíma við allar daglegar bókhaldsaðgerðir
Bókhald er mikil handavinna, með sömu endurteknu aðgerðunum. Hvort sem það er að slá inn fylgiskjöl, afstemma bankann eða bóka reikninga. Því fleiri fyrirtæki, því meiri vinna, og álagið magnast fyrir hver VSK-skil. Skrif kemur inn sem þinn aðstoðarmaður í bókhaldinu, og framkvæmir allar daglegu aðgerðirnar með þér.
Taktu saman alla reikninga frá Fossberg ehf. og berðu saman breytingu milli mánaða
Hvers vegna stemmir bókhaldið ekki við bankann eftir apríl?
Sýndu mér allt óafstemmt á bankareikningi 8245 á þessu ári
Komdu með tíu hæstu kostnaðarfærslur ársins ásamt fylgiskjölunum þeirra
Vantar einhver fylgiskjöl með Elko-færslunum í janúar og febrúar?
Farðu yfir lánardrottininn Borgarverk ehf. og athugaðu hvort þar leynist tvíbókun
Sæktu alla reikninga frá Fossberg ehf. síðustu átta mánuði og listaðu þá
Hvaða færslur vantar fylgiskjöl fyrir VSK-uppgjörið í maí og júní?
Finndu allar tvígreiðslur til birgja á þessu ári
Stemmdu tollskýrsluna af við innkaupareikninginn og bókaðu aðflutningsgjöldin
Lestu Excel-skjalið með útlögðum kostnaði og leggðu til færslurnar
Hvað er útistandandi hjá viðskiptavinum og hvað er komið fram yfir gjalddaga?
Berðu saman rekstrarkostnaðinn í ár við í fyrra, sundurliðað eftir mánuðum
Sjálfvirk afstemming við bankann
Skrif les bankafærslurnar jafnóðum og afstemmir sjálfkrafa við bókhaldið, þvert á öll fyrirtækin. Það sem stemmir er afgreitt án handavinnu og það sem stendur út af sést strax. Auðvelt er að sjá hvenær bókhaldið fer úr takti við bankann.
Þú samþykkir allar aðgerðir
Ekkert fer inn í bókhaldið án samþykkis bókarans. Þú segir Skrif hvað á að gera og aðgerðin er lögð fram sem form sem þú skoðar og samþykkir. Skrif hefur aðgengi að mikilli þekkingu og lærir betur á ykkar aðferðir með tímanum.
Skrif vinnur ofan á kerfunum sem þið notið nú þegar
Skrif er ekki nýtt bókhaldskerfi sem þið þurfið að skipta yfir í. Það vinnur ofan á bankanum og bókhaldskerfinu sem stofan notar í dag, hvort sem það er DK, Business Central eða Payday, svo það er engin tvískráning. Við leiðum ykkur í gegnum uppsetninguna og tengingarnar.
Öll fyrirtækin á einum stað
Öll fyrirtækin í einu viðmóti, hvert tengt sínum bönkum og sínu bókhaldskerfi. Þú nærð heildaryfirsýn yfir öll fyrirtækin þar sem einfalt er að skipta á milli þeirra.
Skrif auðveldar endurteknu verkin
Fyrir hvert fyrirtæki dregur Skrif upp réttu upplýsingarnar og leggur fram drög að aðgerðum. Hvort sem það er stofnun og meðhöndlun reikninga, útgjalda, viðskiptavina eða lánardrottna.
Stórt verkfærasett
Á bak við spjallið er stórt verkfærasett og hvert verkfæri er aðlagað að þeim kerfum sem fyrirtækið er tengt við.
Skrif lærir hvernig stofan vinnur
Þegar þú leiðréttir Skrif lærir það vinnubrögð stofunnar og endurtekur þau rétt í næsta skipti, hvert fyrirtæki fyrir sig. Eins og að bæta við bókara sem man alltaf hvernig hlutirnir eiga að vera.
Næst þegar Síminn kemur inn bókast hann sjálfkrafa svona.
Engin lokatörn fyrir hver VSK-skil
Þegar bókhaldið er afstemmt alla daga, oft á dag, er ekkert sem þarf að taka til á síðustu stundu. Vandamál koma í ljós jafnóðum, svo skiladagarnir verða viðburðalausir í stað þess að kalla á yfirvinnu nokkrum sinnum á ári.
Láttu Skrif vinna í bakgrunni
Settu Skrif af stað og leyfðu því að vinna í bakgrunni, mörg verkefni samtímis þvert á öll fyrirtækin. Þú kemur til baka og samþykkir það sem er tilbúið. Þannig getur þú sparað tíma og dreift álaginu.
Byggt fyrir íslensk fyrirtæki
Skrif þekkir íslenskt bókhaldsumhverfi, VSK, skattareglur og bókunarhefðirnar sem gilda hér heima.
Þekkir íslenskar bókunarreglur
VSK, innskattur og bókhaldslyklar. Skrif bókar eftir íslenskum reglum og þú samþykkir hverja færslu áður en hún fer inn.
Þjóðskrá og Fyrirtækjaskrá
Flettir upp fólki og fyrirtækjum eftir nafni eða kennitölu.
Miðgengi Seðlabankans
Sækir daglegt miðgengi Seðlabanka Íslands, svo gengismunur reiknast á réttu gengi.
Greinir fylgiskjöl
Les kvittanir, reikninga og skjöl með gervigreind.
Tengt íslenskum kerfum
Skrif er í stöðugri þróun við innleiðingu tenginga við öll íslensk kerfi sem auðvelda bókhaldsvinnuna.