Fyrir fyrirtækjabókhald

Stafrænn bókari sem heldur bókhaldinu uppfærðu, afstemmir bankann og aðstoðar við allar helstu aðgerðirnar í daglegu bókhaldi.

01

Sparaðu tíma og hraðaðu á bókhaldinu

Endurtekna handavinnan í bókhaldinu étur upp tíma sem nýtist betur í reksturinn. Skrif er þinn aðstoðarmaður í bókhaldi og getur framkvæmt allar helstu bókhaldsaðgerðirnar með þér. Hvort sem það er að stofna sölureikninga, lesa fylgiskjöl, bóka færslur, taka eftir villum og halda öllu afstemmdu. Þú kemst hraðar í gegnum bókhaldið og losnar við tímafrekan innslátt.

Spurðu um hvað sem er, eða láttu Skrif sjá um það

Taktu saman

02

Sjáðu rétta stöðu hvenær sem er

Bankinn afstemmist jafnóðum og staðan uppfærist sjálfkrafa. Þú veist alltaf hvar reksturinn stendur, ekki bara um mánaðamót.

Arion banki
Rekstrarreikningur
0133-26-007654
2.480.350 kr
Arion banki
Fyrirtækjakort
•••• 4521
184.200 kr
Aðföng ehf.-12.400 kr
Óafstemmt
Norðurvík ehf.+148.000 kr
Afstemmt
Síminn-7.990 kr
Afstemmt
N1-8.450 kr
Afstemmt
Microsoft 365-2.490 kr
Afstemmt
03

Spjallaðu við bókhaldið

Segðu Skrif hvað þú þarft, hvort sem það er færsla, reikningur eða staða á mannamáli. Skrif stofnar líka reikninga, útgjöld, viðskiptavini og lánardrottna eftir þínum fyrirmælum, ásamt fjölmörgum öðrum aðgerðum.

Hvað á ég eftir að borga í VSK í þessu tímabili?
Skrif

Miðað við bókhaldið eins og það stendur í dag:

VSK, mars til aprílUpphæð
Útskattur512.000 kr
Innskattur-200.000 kr
Til greiðslu312.000 kr

Skiladagur er 5. júní.

Spurðu um hvað sem er, eða láttu Skrif sjá um það
Hvernig er staðan?Stofnaðu reikningBókaðu þessa kvittunHvað á ég eftir í VSK?
04

Stórt verkfærasett

Á bak við spjallið er stórt verkfærasett og hvert verkfæri er aðlagað að þeim kerfum sem fyrirtækið er tengt við.

Stofnaðu sölureikning á Norðurvík ehf.
Skrif
Stofna sölureikning
Fylgiskjal2026-0412
Bókhaldslykill4010 Sala
DagbókSölubók
DKSérsniðið að DK
Yfir 30 verkfæri og tól, sem fara hratt fjölgandi
AfstemmaBóka færsluStofna sölureikningStofna útgjöldLesa fylgiskjölStofna viðskiptavinÞjóðskráGengi gjaldmiðla& margfalt fleiri
05

Hættu að slá inn kvittanir

Skrif les og greinir fylgiskjöl, dregur upp réttu færsluna og bíður eftir samþykki þínu. Þú þarft ekki að kunna og muna allt í hvert skipti, láttu Skrif bara gera þetta eins og síðast.

Kvittun - Vélaver ehf.
Eldsneyti
Lesin
Kennitala521122-0980
Dagsetning02.06.2026
VSK24%
Samtals8.450 kr
Drög að færslu tilbúin, bíða samþykkis þíns.
06

Þú samþykkir hverja færslu

Ekkert fer inn í bókhaldið án þíns samþykkis. Skrif dregur upp tillögur og lætur þig vita strax ef eitthvað vantar. Af því bókhaldið er alltaf uppfært verða VSK-skilin áreynslulaus í stað þess að vera törn.

Stofna dagbókarfærslu
02.06.2026Eldsneyti, N1
6310Eldsneytiskostnaður6.815
2434Innskattur 24%1.635
1100Bankareikningur8.450
8.450Debet
8.450Kredit
Engin færsla fer inn án þíns samþykkis.
07

Við komum þér af stað

Þú tengir bankann og bókhaldskerfið einu sinni og þarft ekki að spá í því framar. Við getum hjálpað þér í gegnum uppsetninguna. Skrif er ekki nýtt kerfi sem þú þarft að skipta yfir í, heldur vinnur það ofan á því sem þú notar nú þegar.

Komdu þér af stað
Arion banki
Tengi bankann
Arion banki
Payday
Tengi bókhaldskerfið
Payday
Sjálfvirkt
Skrif tilbúið að vinna
Sjálfvirkt
Tilbúið á örfáum mínútum.
08

Virkar einstaklega vel á ferðinni

Hefur þú einhvern tímann bókað í síma? Við leggjum mikla áherslu á vandað viðmót sem virkar vel í öllum tækjum, hvort sem þú situr við tölvuna eða ert á ferðinni með símann.

Skrif í símanum

Byggt fyrir íslensk fyrirtæki

Skrif þekkir íslenskt bókhaldsumhverfi, VSK, skattareglur og bókunarhefðirnar sem gilda hér heima.

Þekkir íslenskar bókunarreglur

VSK, innskattur og bókhaldslyklar. Skrif bókar eftir íslenskum reglum og þú samþykkir hverja færslu áður en hún fer inn.

Kostnaðarreikningur - Fjarðanet ehf.
kt. 511015-0670, 12.03.2026
VSK 24%
6420Fjarskiptakostnaður10.073
2434Innskattur 24%2.417
Án VSK10.073
Samtals12.490 kr
Jón Jónsson
kt. 010180-1239
Þjóðskrá
Tempo ehf.
kt. 501020-3190
Fyrirtækjaskrá

Þjóðskrá og Fyrirtækjaskrá

Flettir upp fólki og fyrirtækjum eftir nafni eða kennitölu.

EUR156,30 kr+0,29%
USD138,45 kr−0,12%
DKK20,94 kr+0,08%
Miðgengi í dag

Miðgengi Seðlabankans

Sækir daglegt miðgengi Seðlabanka Íslands, svo gengismunur reiknast á réttu gengi.

Kvittun - Vélaver ehf.
Eldsneyti
Lesin
Kennitala521122-0980
VSK24%
Samtals8.450 kr

Greinir fylgiskjöl

Les kvittanir, reikninga og skjöl með gervigreind.

Arion banki
Landsbankinn
Íslandsbanki
DK
Payday
Business Central
Regla

Tengt íslenskum kerfum

Skrif er í stöðugri þróun við innleiðingu tenginga við öll íslensk kerfi sem auðvelda bókhaldsvinnuna.

Byrjaðu í dag

Heyrðu í okkur og við hjálpum þér að finna réttu leiðina sem hentar þínum rekstri.